6. sunnudagur eftir þrenningarhátíð
Litur: Grænn.
Vers vikunnar:
„En nú segir Drottinn svo,
sá sem skóp þig, Jakob,
og myndaði þig, Ísrael:
Óttast þú ekki því að ég frelsa þig,
ég kalla á þig með nafni,
þú ert minn.“ (Jes 43.1)
Kollekta:
Almáttugi, eilífi Guð, sem gefur allt hið góða: Gróðurset í hjörtu vor kærleik til
þíns heilaga nafns og veit oss vöxt í trúnni, svo að þú megir í oss efla allt gott
og varðveita af föðurelsku þinni það sem þú lífgar og styrkir. Fyrir son þinn Jesú
Krist, Drottin vorn, sem með þér lifir og ríkir í einingu heilags anda, einn sannur
Guð um aldir alda.
Textaröð:
A
Lexía:
Jes 43.1-7 En nú segir Drottinn svo,
Pistill:
Róm 6.3-11 Eða vitið þið ekki að við öll, sem skírð erum til Krists Jesú, erum skírð til dauða hans? Við erum því dáin og greftruð með honum í skírninni. Og eins og faðirinn vakti Krist frá dauðum með dýrðarmætti sínum, eins eigum við að lifa nýju lífi.
Guðspjall:
Matt 28.18-20 Og Jesús kom til þeirra, talaði við þá og sagði: „Allt vald er mér gefið á himni og jörðu. Farið því og gerið allar þjóðir að lærisveinum, skírið þá í nafni föður og sonar og heilags anda og kennið þeim að halda allt það sem ég hef boðið yður. Sjá, ég er með yður alla daga allt til enda veraldar.“
Sálmur:
250 Til mín skal börnin bera, Vor Jesús börnin blíður Til Krists því koma látið, Becker - Sb. 1886 - Helgi Hálfdánarson Bæn dagsins:
Trúfasti Guð, þú sem í heilagri skírn
gjörðir okkur að þínum börnum,
og kallaðir okkur með nafni
til að vera þín eign.
Leyfðu okkur að ganga í gleði og trúfesti vegu lífsins,
og að reyna að ekkert getur gjört okkur viðskila við kærleika þinn,
sem þú gafst okkur í Jesú Kristi,
þínum kæra syni og bróður okkar.
Amen.
|
|||||