7. sunnudagur eftir þrenningarhátíð
Við borð Drottins. Litur: Grænn.
Vers vikunnar:
„Þess vegna eruð þið ekki framar gestir og útlendingar heldur eruð þið samþegnar hinna heilögu og heimamenn Guðs.“ (Ef 2.19)
Kollekta:
Eilífi Guð, þú sem aldrei bregst í ráðum forsjónar þinnar, vér biðjum þig: Tak frá
oss allt, sem oss má að meini verða og gef oss það, sem farsælir oss til lífs og
sálar. Fyrir son þinn Jesú Krist, Drottin vorn, sem með þér lifir og ríkir í einingu
heilags anda, einn sannur Guð um aldir alda.
Textaröð:
A
Lexía:
Slm 147.1-11 Hallelúja.
Pistill:
2Kor 9.8-12 Guð er þess megnugur að veita ykkur ríkulega allar góðar gjafir til þess að þið í öllu og ávallt hafið allt sem þið þarfnist og getið sjálf veitt ríkulega til allra góðra verka. Eins og ritað er: Hann miðlaði mildilega, gaf hinum snauðu, réttlæti hans varir að eilífu. Guð sem gefur sáðmanninum sæði og brauð til fæðu mun og gefa ykkur sáð og margfalda það og auka ávöxt réttlætis ykkar. Guð mun auðga ykkur í öllu svo að þið getið jafnan sýnt örlæti. Þá munu margir þakka Guði fyrir gjafirnar sem við komum með frá ykkur. Því að þessi þjónusta, sem þið innið af hendi, bætir ekki aðeins úr skorti hinna heilögu heldur leiðir hún einnig til þess að margir menn þakka Guði.
Guðspjall:
Mrk 8.1-9 Um þessar mundir bar enn svo við að mikill mannfjöldi var saman kominn og hafði ekkert til matar. Jesús kallar þá til sín lærisveinana og segir við þá: „Ég kenni í brjósti um mannfjöldann. Menn hafa nú verið hjá mér þrjá daga og hafa ekkert til matar. Láti ég þá fara fastandi heim til sín örmagnast þeir á leiðinni en sumir þeirra eru langt að.“
Sálmur:
239 Ó, Jesús, lífsins blessað brauð, Sb. 1886 - Helgi Hálfdánarson Bæn dagsins:
Drottin dýrðarinnar,
þú sem gefur okkur allt sem við þörfnumst til að lifa,
og gefur okkur Jesú Krist, son þinn,
hann sem er brauð lífsins.
Opna hjörtu okkar og huga
svo að við meðtökum hversu ríkulega gæsku
þú sýnir öllum mönnum í Jesú Kristi,
bróður okkar og Drottni.
Amen.
|
|||||