8. sunnudagur eftir þrenningarhátíð
Litur: Grænn.
Vers vikunnar:
„Hegðið ykkur því eins og börn ljóssins. - Því að ávöxtur ljóssins er einskær góðvild, réttlæti og sannleikur.“ (Ef 5.8b-9)
Kollekta:
Drottinn Guð, vér biðjum þig: Gef oss af mildi þinni þann anda, að vér hugsum ávallt
það sem er rétt og breytum eftir því, svo að vér, sem getum ekki án þín verið, megum
lifa samkvæmt þínum vilja. Fyrir son þinn Jesú Krist, Drottin vorn, sem með þér
lifir og ríkir í einingu heilags anda, einn sannur Guð um aldir alda.
Textaröð:
A
Lexía:
Jer 23.16-18, 20-21 Svo segir Drottinn hersveitanna: Reiði Drottins slotar ekki
Pistill:
Róm 8.12-17 Þannig erum við, systkin,
Guðspjall:
Matt 7.15-23 Varist falsspámenn. Þeir koma til yðar í sauðaklæðum en innra eru þeir gráðugir vargar. Af ávöxtum þeirra skuluð þér þekkja þá. Hvort lesa menn vínber af þyrnum eða fíkjur af þistlum? Þannig ber sérhvert gott tré góða ávöxtu en slæmt tré vonda. Gott tré getur ekki borið vonda ávöxtu, ekki heldur slæmt tré góða ávöxtu. Hvert það tré, sem ber ekki góðan ávöxt, verður upp höggvið og því í eld kastað. Af ávöxtum þeirra skuluð þér því þekkja þá. Ekki mun hver sá sem segir við mig: Drottinn, Drottinn, ganga inn í himnaríki heldur sá einn er gerir vilja föður míns sem er á himnum. Margir munu segja við mig á þeim degi: Drottinn, Drottinn, höfum vér ekki í þínu nafni flutt orð Guðs, rekið út illa anda og gert mörg kraftaverk? Þá mun ég votta þetta: Aldrei þekkti ég yður. Farið frá mér, illgjörðamenn.
Sálmur:
298 Ó, Herra, Guð, lát hjá oss mætast Lát svikaspár ei sálir villa Að þitt nú, Drottinn, orð vér eigum, Landstad - Sb. 1886 - Helgi Hálfdánarson Bæn dagsins:
Drottinn Guð,
þú sem heldur öllu til haga með kærleika þínum og vísdómi,
við komum til þín full trúnaðartrausts og biðjum þig:
Haltu frá okkur öllu því sem skaðar okkur og spillir,
og veit okkur það eitt sem þjónar til blessunar og hjálpar.
Fyrir Drottin Jesú Krist, sem er bróðir okkar og frelsari,
og lifir og ríkir með þér og heilögum Anda
frá eilífð til eilífðar. Amen.
|
|||||