10. sunnudagur eftir þrenningarhátíð
Litur: Grænn.
Vers vikunnar:
„Sæl er sú þjóð sem á Drottin að Guði,
þjóðin sem hann valdi sér til eignar.“ (Slm 33.12)
Kollekta:
Guð, eilífi faðir, þú sem sýnir almætti þitt helst og fremst með því að þyrma og
miskunna: Auðga oss af þinni náð, svo að vér, sem höfum fyrirheit þitt fyrir augum,
megum hlutdeild fá í himneskri blessun þinni. Fyrir son þinn Jesú Krist, Drottin
vorn, sem með þér lifir og ríkir í einingu heilags anda, einn sannur Guð um aldir
alda.
Textaröð:
A
Lexía:
Jer 18.1-10 Orðið sem kom til Jeremía frá Drottni: Farðu nú niður í hús leirkerasmiðsins. Þar mun ég láta þig heyra orð mín.
Pistill:
Róm 9.1-5 Ég tala sannleika í Kristi, ég lýg ekki, samviska mín, upplýst af heilögum anda, vitnar það með mér að ég hef mikla hryggð og sífellda kvöl í hjarta mínu og gæti óskað að mér væri sjálfum útskúfað frá Kristi ef það yrði til heilla fyrir bræður mína og ættmenn, Ísraelsmenn. Þeir eiga frumburðarréttinn, dýrðina, sáttmálana,
Guðspjall:
Lúk 19.41-48 Og er Jesús kom nær og sá borgina grét hann yfir henni og sagði: „Ef þú hefðir aðeins vitað á þessum degi hvað til friðar heyrir! En nú er það hulið sjónum þínum. Því að þeir dagar munu koma yfir þig að óvinir þínir munu gera virki um þig, setjast um þig og þröngva þér á alla vegu. Þeir munu leggja þig að velli og börn þín sem í þér eru og ekki láta standa stein yfir steini í þér vegna þess að þú þekktir ekki þinn vitjunartíma.“ Þá gekk hann inn í helgidóminn og tók að reka út þá er voru að selja og mælti við þá: „Ritað er:
Sálmur:
188 Jesús grætur, heimur hlær, Jesús grætur, hjartað hans Jesús grætur, orð hans er: Jesús grætur, grátið þér, Ingemann - Sb. 1871 - Helgi Hálfdánarson Bæn dagsins:
Trúfasti Guð,
þú sem gjörðist maður í Jesú Kristi,
meðal gyðinganna,
og til hjálpar öllum heimi.
Þú varst trúr þeim lýð er þú valdir,
en þú raufst múrana
og opnaðir öllum þjóðum
og öllum mönnum, leið til þín,
og þú kallar alla til að fylgja þér.
Styrk þú löngun okkar eftir ríki þínu
þar sem kristnir menn og gyðingar
munu sameinast og lofa þig um eilífð.
Amen.
|
|||||