11. sunnudagur eftir þrenningarhátíð
Farísei og tollheimtumaður. Litur: Grænn.
Vers vikunnar:
„Guð stendur gegn dramblátum en auðmjúkum veitir hann náð.“ (1Pét 5.5b)
Kollekta:
Algóði, eilífi Guð. Þú ert fúsari að heyra en vér að biðja
og veitir oss langt yfir allt það fram, sem vér óskum og verðskuldum:
Lát gnægð gæsku þinnar og miskunnar koma yfir oss,
svo að þú megir afmá það allt, sem hrellir samviskuna
og að auki veita þá blessun, sem vér kunnum ekki um að biðja.
Fyrir son þinn Jesú Krist, Drottin vorn, sem með þér lifir og ríkir
í einingu heilags anda, einn sannur Guð um aldir alda. Amen.
Textaröð:
A
Lexía:
Jes 2.11-17 Hrokafull augu manna munu auðmýkt
Pistill:
Róm 3.21-26 En nú hefur Guð opinberað réttlæti sitt sem lögmálið og spámennirnir vitna um og byggist ekki á lögmáli. Það er: Réttlæti trúarinnar sem Guð gefur öllum þeim sem trúa á Jesú Krist. Hér er enginn greinarmunur: Allir hafa syndgað og skortir Guðs dýrð og Guð réttlætir þá, án þess nokkur verðskuldi það, af náð með endurlausn sinni í Kristi Jesú. Guð bendir á blóð hans sem sáttarfórn þeim sem trúa. Þannig sýnir hann réttlæti sitt. Hann hafði umborið þær syndir sem áður voru drýgðar til þess að birta réttlæti sitt á yfirstandandi tíma, að hann er sjálfur réttlátur og réttlætir þann sem trúir á Jesú.
Guðspjall:
Lúk 18.9-14 Jesús sagði líka dæmisögu þessa við nokkra þá er treystu því að sjálfir væru þeir réttlátir en fyrirlitu aðra: „Tveir menn fóru upp í helgidóminn að biðjast fyrir. Annar var farísei, hinn tollheimtumaður.
Sálmur:
189 Í Guðs hús forðum gengu tveir, Sem Farísei' eg einatt er, Ég þori varla að horfa hátt Þá hryggur ég á brjóst mér ber, Sb. 1886 - Valdimar Briem Bæn dagsins:
Drottinn Guð.
Þú þekkir okkur.
Þú veist að sjálfsmat okkar er oft brenglað.
Ýmist metum við okkur of hátt,
eða of lágt.
Sýndu okkur hver við erum í raun.
Láttu okkur standast prófið,
svo að við getum örugg staðið frami fyrir þér.
Við biðjum þig,
vertu nálægur okkur
með frelsi þitt og frið,
er við biðjum og syngjum,
hlustum og tölum,
fyrir Jesú Krist, bróður okkar og Drottin.
|
|||||