12. sunnudagur eftir þrenningarhátíð
Litur: Grænn.
Vers vikunnar:
„Brákaðan reyrinn brýtur hann ekki sundur
og dapran hörkveik slekkur hann ekki.“ (Jes 42.3a)
Kollekta:
Almáttugi, miskunnsami Guð. Það er gjöf náðar þinnar, að þeir, sem á þig trúa, veiti
þér verðuga og lofsamlega þjónustu, vér biðjum þig: Veit að vér megum höndla
fyrirheit þín án þess að hrasa. Fyrir son þinn Jesú Krist, Drottin vorn, sem með þér
lifir og ríkir í einingu heilags anda, einn sannur Guð um aldir alda.
Textaröð:
A
Lexía:
Jes 29.17-24 Er ekki skammt þar til
Pistill:
2Kor 3.4-9 Það er vegna Krists sem ég er svo öruggur frammi fyrir Guði. Ekki svo að skilja að ég sé sjálfur hæfur og geti eitthvað sjálfur heldur er hæfileiki minn frá Guði. Guð hefur gert mig hæfan til að vera þjónn nýs sáttmála sem ekki er ritaður á bók heldur er hann andlegur. Því að bókstafurinn deyðir en andinn lífgar.
Guðspjall:
Mrk 7.31-37 Síðan hélt Jesús úr Týrusarbyggðum, um Sídon og yfir Dekapólisbyggðir miðjar til Galíleuvatns. Þá færa menn til hans daufan og málhaltan mann og biðja hann að leggja hönd sína yfir hann. Jesús leiddi hann afsíðis frá fólkinu, stakk fingrum sínum í eyru honum og vætti tungu hans með munnvatni sínu. Þá leit hann upp til himins, andvarpaði og sagði við hann: „Effaþa,“ það er: Opnist þú.
Sálmur:
190 Lát opnast augu mín, Lát opnast eyru mín, Lát opnast munninn minn, Lát opnast harðlæst hús Lát opnast himins hlið, Sb. 1886 - Valdimar Briem Bæn dagsins:
Guð,
þú sem ert smyrsl sálarinnar,
lækna sár okkar sem ekki gróa
og sárin sem við höfum valdið öðrum.
Verði vilji þinn að eilífu.
Í Jesú nafni. Amen.
|
|||||