13. sunnudagur eftir þrenningarhátíð
Þrettándi sunnudagur eftir þrenningarhátíð er dagur díakoníunnar.
Litur: Grænn.
Vers vikunnar:
Kristur segir: „Allt sem þér gerðuð einum minna minnstu bræðra, það hafið þér gert mér.“ (Matt 25.40b)
Kollekta:
Almáttugi, eilífi Guð: Auk oss trú, von og kærleika. Lát oss elska það, sem þú
býður, að vér öðlumst það, sem þú hefur heitið oss. Fyrir son þinn Jesú Krist,
Drottin vorn, sem með þér lifir og ríkir í einingu heilags anda, einn sannur Guð um
aldir alda.
Textaröð:
A
Lexía:
1Mós 4.3-16a Einhverju sinni færði Kain Drottni fórn af ávexti jarðarinnar. Abel færði einnig fórn af frumburðum hjarðar sinnar og feiti þeirra. Drottinn gaf gaum að Abel og fórn hans en leit ekki við Kain og fórn hans. Þá reiddist Kain mjög og varð þungur á brún. Drottinn sagði við Kain: „Hví reiðist þú og ert þungur á brún? Er ekki svo að þú getur verið upplitsdjarfur ef þú gerir rétt, en gerir þú rangt þá liggur syndin við dyrnar? Hún girnist þig en þú getur sigrast á henni.“ Þá sagði Kain við Abel, bróður sinn: „Göngum út á akurinn.“
Pistill:
1Jóh 4.7-11 Þið elskuðu, elskum hvert annað því að kærleikurinn er frá Guði kominn og hver sem elskar er barn Guðs og þekkir Guð. Sá sem ekki elskar þekkir ekki Guð því að Guð er kærleikur. Í því birtist kærleikur Guðs til okkar að Guð hefur sent einkason sinn í heiminn til þess að hann skyldi veita okkur nýtt líf. Þetta er kærleikurinn: Ekki að við elskuðum Guð heldur að hann elskaði okkur og sendi son sinn til að vera friðþæging fyrir syndir okkar.
Guðspjall:
Lúk 10.23-37 Og Jesús sneri sér að lærisveinum sínum og sagði einslega við þá: „Sæl eru þau augu sem sjá það sem þér sjáið. Því að ég segi yður: Margir spámenn og konungar vildu sjá það sem þér sjáið en sáu það ekki og heyra það sem þér heyrið en heyrðu það ekki.“ Lögvitringur nokkur sté fram, vildi freista Jesú og mælti: „Meistari, hvað á ég að gera til þess að öðlast eilíft líf?“
Sálmur:
191 Hvar lífs um veg þú farinn fer, Hvar sem þú einhvern auman sér, Þú getur sífellt alveg eins Sá eini' er hvergi fram hjá fer, Sb. 1886 - Valdimar Briem Bæn dagsins:
Guð, sem elskar,
þú sem sérð eymd og neyð okkar mannanna
og sendir son þinn til þess að þjóna okkur í kærleika.
Hjálpa þú okkur að líkjast honum.
Gefðu okkur góðvild og miskunnsemi
svo að við göngum ekki framhjá þeim
sem þarfnast hjálpar okkar.
Heyr þá bæn fyrir Jesú Krist. Amen.
|
|||||