14. sunnudagur eftir þrenningarhátíð
Litur: Grænn.
Vers vikunnar:
„Lofa þú Drottin, sála mín,
og gleym eigi neinum velgjörðum hans.“ (Slm 103.2b)
Kollekta:
Drottinn, eilífi Guð, án þín hljóta dauðlegir menn að falla: Vér biðjum þig að
varðveita kirkju þína í trúfastri miskunn þinni. Kom til hjálpar, vík frá öllum voða
og leið oss á vegi hjálpræðis þíns. Fyrir son þinn Jesú Krist, Drottin vorn, sem með
þér lifir og ríkir í einingu heilags anda, einn sannur Guð um aldir alda.
Textaröð:
A
Lexía:
Slm 146 Hallelúja.
Pistill:
Gal 5.16-24 En ég segi: Lifið í andanum og þá fullnægið þið alls ekki girnd holdsins. Holdið girnist gegn andanum og andinn gegn holdinu. Þau standa hvort gegn öðru til þess að þið gerið ekki það sem þið viljið. En ef þið leiðist af andanum þá eruð þið ekki undir lögmáli.
Guðspjall:
Lúk 17.11-19 Svo bar við á ferð Jesú til Jerúsalem að leið hans lá á mörkum Samaríu og Galíleu. Og er hann kom inn í þorp nokkurt mættu honum tíu líkþráir menn. Þeir stóðu álengdar, hófu upp raust sína og kölluðu: „Jesús, meistari, miskunna þú oss!“
Sálmur:
192 Á meðan engin mætir neyð, En þegar kemur hregg og hríð Hann harmakvein vort heyrir vel En gjafarinn oss gleymist þrátt, Sjá, ævin hefur enga bið, Því jafnvel skynlaus skepnan sér, Ó, stöndum eigi eftir þá, Sb. 1886 - Valdimar Briem Bæn dagsins:
Guð,
þú sem ert brunnur og lind náðarinnar.
Allt hið góða kemur frá þér,
og af því gefur þú okkur ríkulega.
Opna þú hjörtu okkar
svo að við sjáum og skiljum það,
og lærum að þakka þér
fyrir gæsku þína og miskunnsemi
svo lengi sem við lifum.
Fyrir Drottin Jesú Krist, son þinn,
og bróður okkar,
sem með þér og heilögum anda
lifir og gefur líf
að eilífu.
|
|||||