Uppstigningardagur
Litur: Hvítur.
Kollekta:
Alvaldi, eilífi Guð, vér biðjum þig: Veit oss, sem trúum því, að einkasonur þinn,
Jesús Kristur, frelsari vor, sé upp stiginn til himna, að vér megum hjá honum vera
með hug og hjarta og eilíflega fylgja honum, sem með þér lifir og ríkir í einingu
heilags anda,
einn sannur Guð um aldir alda.
Textaröð:
A
Lexía:
Dan 7.13-14 Ég horfði á í nætursýnum
Pistill:
Post 1.1-11 Fyrri sögu mína, Þeófílus, samdi ég um allt sem Jesús gerði og kenndi frá upphafi, allt til þess dags er hann varð upp numinn. Áður hafði hann gefið postulunum, sem hann hafði valið með heilögum anda, fyrirmæli sín. Hann birtist þeim eftir dauða sinn og sýndi þeim með órækum sönnunum að hann lifði. Hann lét þá sjá sig í fjörutíu daga og talaði um Guðs ríki. Er Jesús neytti matar með þeim bauð hann þeim að fara ekki burt úr Jerúsalem heldur bíða eftir því sem faðirinn gaf fyrirheit um „og þér hafið heyrt mig tala um. Því að Jóhannes skírði með vatni en þér skuluð skírðir verða með heilögum anda, nú innan fárra daga.“ Meðan þeir voru saman spurðu þeir hann: „Drottinn, ætlar þú á þessum tíma að endurreisa ríkið handa Ísrael?“
Guðspjall:
Mrk 16.14-20 Seinna birtist Jesús þeim ellefu þegar þeir sátu til borðs og ávítaði þá fyrir vantrú þeirra og þverúð hjartans, að þeir hefðu ekki trúað þeim er sáu hann upp risinn. Jesús sagði við þá: „Farið út um allan heim og prédikið fagnaðarerindið öllu mannkyni. Sá sem trúir og skírist mun hólpinn verða en sá sem trúir ekki mun dæmdur verða. En þessi tákn munu fylgja þeim er trúa: Í mínu nafni munu þeir reka út illa anda, tala nýjum tungum, taka upp höggorma og þó að þeir drekki eitthvað banvænt mun þeim ekki verða meint af. Yfir sjúka munu þeir leggja hendur og þeir verða heilir.“
Sálmur:
170 Vér horfum allir upp til þín, Vorn huga, Drottinn, drag til þín Og ekkert löngun hjartans hér En styrk oss til að stríða hér, Sb. 1871 - Páll Jónsson Bæn dagsins:
Jesús Kristur,
himininn stendur opinn –
þú sýnir okkur jörðina.
Þú ert hjá Guði –
þú ert nálægt okkur.
Þú hefur himinn og jörð
í höndum þínum –
þú heldur á okkur.
Lof sé þér Kristur, Drottinn.
Amen.
|
|||||