4. sunnudagur í aðventu - Jólagleðin nálgast
Litur: Fjólublár. Dýrðarsöngur/lofgjörð ekki sungin.
Vers vikunnar:
„Verið ávallt glöð í Drottni. Ég segi aftur: Verið glöð.“ „Drottinn er í nánd.“ (Fil 4.4 og 5b)
Kollekta:
Vér biðjum þig, Drottinn: Kom í krafti þínum og hjálpa oss, svo að allt hið góða, sem syndir vorar hindra, megi framgang fá sakir náðar þinnar, þú sem lifir og rikir með Guði föður í einingu heilags anda, einn sannur Guð um aldir alda.
Textaröð:
B
Lexía:
Jes 12.2-5 Sjá, Guð er hjálp mín,
Pistill:
1Jóh 1.1-4 Efni vort er það sem var frá upphafi, það sem við höfum heyrt, það sem við höfum séð með augunum, það sem við horfðum á og hendurnar þreifuðu á, það er orð lífsins. Og lífið var opinberað og við höfum séð það og vottum um það og boðum ykkur lífið eilífa sem var hjá föðurnum og var opinberað okkur. Já, það sem við höfum séð og heyrt það boðum við ykkur einnig, til þess að þið getið líka haft samfélag við okkur. Og samfélag vort er við föðurinn og við son hans Jesú Krist. Þetta skrifum við til þess að fögnuður vor verði fullkominn.
Guðspjall:
Jóh 3.22-36 Eftir þetta fóru Jesús og lærisveinar hans út í Júdeuhérað. Þar dvaldist hann með þeim og skírði. Jóhannes var líka að skíra í Aínon nálægt Salím en þar var mikið vatn. Menn komu þangað og létu skírast. Þá var ekki enn búið að varpa Jóhannesi í fangelsi.
Sálmur:
59 Gjör dyrnar breiðar, hliðið hátt. Hann býður líknar blessað ár Sjá, mildi' er lögmál lausnarans, Hve sælt það land, hve sælt það hús, Hve sælt það hjarta ávallt er, Gjör dyrnar breiðar, hliðið hátt Ég opna hlið míns hjarta þér, Ó, kom, minn Jesú, kom sem fyrst, Helgi Hálfdánarson Bæn dagsins:
Eilífi Guð, við bíðum Jesú Krists sonar þíns og bróður okkar sem kemur til að dæma heiminn og til að frelsa hann. Gef þú okkur fullvissu þess að hann úrskurðar í náð, og vek með okkur gleðina yfir því að hann frelsar. Þér sé lof að eilífu. Amen.
|
|||||