Allra heilagra messa
1. nóvember - fyrsti sunnudagur í nóvember.
Litur: Hvítur eða rauður.
Kollekta:
Eilífi, almáttugi Guð, sem vilt helga þá alla, sem þú hefur útvalið og elskað í
einkasyni þínum: Lát þú oss líkjast helgum vottum þínum í trúnni, voninni og
kærleikanum, að vér megum hljóta sömu sáluhjálp. Fyrir son þinn Jesú Krist, Drottin
vorn, sem með þér lifir og ríkir í einingu heilags anda, einn sannur Guð um aldir
alda.
Textaröð:
B
Lexía:
5Mós 33.1-3 Þannig blessaði guðsmaðurinn Móse Ísraelsmenn áður en hann dó:
Pistill:
Opb 7.13-17 Einn af öldungunum tók þá til máls og sagði við mig: „Hverjir eru þessir menn sem skrýddir eru hvítum skikkjum og hvaðan eru þeir komnir?“
Guðspjall:
Matt 5.13-16 Þér eruð salt jarðar. Ef saltið dofnar, með hverju á að selta það? Það er þá til einskis nýtt, menn fleygja því og troða undir fótum.
Sálmur:
201 Sælir þeir, er sárt til finna Sælir þeir, er sýta' og gráta. Sælir þeir, sem hógvært hjarta Sælir þeir, sem þess hins rétta Sælir þeir, sem vorkunn veita, Sælir allir hjartahreinir, Sælir allir sáttfýsandi, Sælir þeir, er sæta þungum Sb. 1886 - Valdimar Briem Bæn dagsins:
Eilífi, trúfasti Guð.
Þú kallar okkur til samfélags hinna heilögu
sem á öllum tímum og á öllum stöðum
vegsama nafn þitt.
Við þökkum þér
að við fáum að standa fylkingu hinna trúuðu,
saman tengd á grunni hinnar góðu játningar
í glöðu trausti þess
að við munum fá að sjá þig augliti til auglitis.
Þér sé lof að eilífu.
Amen.
|
|||||