Annar hvítasunnudagur
Litur: Rauður.
Vers vikunnar:
„Ekki með valdi né krafti
heldur fyrir anda minn,
segir Drottinn allsherjar.“
(Sak 4.6b)
Kollekta:
Guð, þú sem gafst postulum þínum heilagan anda: Heyr bænir vorar og veit, að vér,
sem þú hefur trúna gefið, megum og frið þinn öðlast. Fyrir son þinn Jesú Krist,
Drottin vorn, sem með þér lifir og ríkir í einingu heilags anda, einn sannur Guð um
aldir alda.
Textaröð:
B
Lexía:
Esk 11.19-20 Þá mun ég gefa þeim eindrægt hjarta og leggja þeim nýjan anda í brjóst. Ég mun fjarlægja steinhjartað úr líkama þeirra og gefa þeim hjarta úr holdi svo að þeir fylgi lögum mínum og haldi reglur mínar og framfylgi þeim. Þá skulu þeir verða mín þjóð og ég skal vera þeirra Guð.
Pistill:
1Kor 12.12-13 Því að eins og líkaminn er einn og hefur marga limi en allir limir líkamans, þótt margir séu, eru einn líkami, þannig er og Kristur. Í einum anda vorum við öll skírð til að vera einn líkami, hvort sem við erum Gyðingar eða Grikkir, þrælar eða frjálsir, og öll fengum við einn anda að drekka.
Guðspjall:
Jóh 4.19-26 Konan segir við hann: „Drottinn, nú sé ég að þú ert spámaður. Feður okkar hafa tilbeðið Guð á þessu fjalli en þið segið að í Jerúsalem sé sá staður þar sem tilbiðja skuli.“
Sálmur:
579 Í öllum ljóma logar sólin Um gullna óttu áin niðar Nú dregur arnsúg ofar tindum. Hér er það Guð, sem öllu ræður. Ó, vertu ei lengur veill né hálfur. Við nafn hans lít ég loga brenna Þá blómgast rós í ríki þínu. Grundtvig - Heimir Steinsson Bæn dagsins:
Andi sannleikans,
þú sem heimurinn fær aldrei skilið
vek upp hjörtu okkar í ótta
við komu þína,
gef okkur þrá eftir friði þínum
og tendra í okkur löngun
til að mæla þitt máttuga orð
Heyr þá bæn í Jesú nafni. Amen.
|
|||||