Annar jóladagur - 26. desember
Litur: Hvítur eða Rauður.
Vers vikunnar:
„Og Orðið varð hold, hann bjó með oss, fullur náðar og sannleika og vér sáum dýrð hans,“ (Jóh 1.14)
Kollekta:
Almáttugi, eilífi Guð, þú sem hefur látið ljóma dýrðar þinnar yfir oss skína í orði þínu, sem varð hold og býr með oss, vér biðjum þig: Gef þú, að ljósið, sem fyrir trúna lýsir í hjörtum vorum, nái að endurskína í verkum vorum. Fyrir son þinn Jesú Krist, Drottin vorn, sem með þér lifir og ríkir í einingu heilags anda, einn sannur Guð um aldir alda.
Textaröð:
B
Lexía:
Jes 9.1-6 Sú þjóð, sem í myrkri gengur,
Pistill:
Tít 2.11-14 Því að náð Guðs hefur opinberast til sáluhjálpar öllum mönnum. Hún kennir okkur að afneita óguðleik og veraldlegum girndum og lifa hóglátlega, réttvíslega og guðrækilega í heimi þessum, í eftirvæntingu okkar sælu vonar, að hinn mikli Guð og frelsari vor Jesús Kristur opinberist í dýrð sinni. Hann gaf sjálfan sig fyrir okkur til þess að hann leysti okkur frá öllu ranglæti og hreinsaði sjálfum sér til handa eignarlýð, kostgæfinn til góðra verka.
Guðspjall:
Matt 1.18-25 Fæðing Jesú Krists varð á þennan hátt: María, móðir hans, var föstnuð Jósef. En áður en þau komu saman reyndist hún þunguð af heilögum anda. Jósef, festarmaður hennar, sem var valmenni, vildi ekki gera henni opinbera minnkun og hugðist skilja við hana í kyrrþey. Hann hafði ráðið þetta með sér en þá vitraðist honum engill Drottins í draumi og sagði: „Jósef, sonur Davíðs, óttast þú ekki að taka til þín Maríu, heitkonu þína. Barnið, sem hún gengur með, er af heilögum anda. Hún mun son ala og hann skaltu láta heita Jesú því að hann mun frelsa lýð sinn frá syndum hans.“
Sálmur:
78 Í dag er glatt í döprum hjörtum, Oss öllum mikinn fögnuð flytur Guðs lýður, vertu' ei lengur hræddur Á himni næturljósin ljóma Ó, dýrð sé þér í hæstum hæðum, Valdimar Briem Bæn dagsins:
Drottinn Jesús Kristur þú ert hið sanna ljós sem lýsir öllum þjóðum. Lát birtu þess einnig ljóma inn í hjörtu okkar og huga, svo að í okkur verði ljós af þínu ljósi til að lýsa upp myrkur þessa heims. Því að þú lifir og ríkir með Guði föður í einingu heilags anda að eilífu. Amen.
|
|||||