Annar í páskum
Litur: Hvítur.
Vers vikunnar:
„Ég dó en nú lifi ég um aldir alda og ég hef lykla dauðans og heljar.“ (Opb.1.18b)
Andstef: Drottinn er upprisinn, hann er sannarlega upprisinn.
Kollekta:
Almáttugi Guð, sem á helgri páskahátíð hefur gefið heiminum heilsu og líf, vér biðjum þig: Lát þína himnesku gjöf bera ávöxt hjá oss, sem þú hefur kallað til þíns eilífa frelsis og lífs. Fyrir son þinn Jesú Krist, Drottin vorn, sem með þér lifir og ríkir í einingu heilags anda, einn sannur Guð um aldir alda.
Textaröð:
B
Lexía:
Slm 16.8-11 Ég hef Drottin ætíð fyrir augum,
Pistill:
1Pét 1.3-9 Lofaður sé Guð og faðir Drottins vors Jesú Krists sem eftir mikilli miskunn sinni hefur endurfætt oss til lifandi vonar fyrir upprisu Jesú Krists frá dauðum og veitt oss óforgengilega, flekklausa og ófölnandi arfleifð sem yður er geymd á himnum. Kraftur Guðs varðveitir yður sem trúið til þess að þér öðlist hjálpræðið sem albúið bíður þess að opinberast á efsta degi.
Guðspjall:
Jóh 20.11-18 En María stóð úti fyrir gröfinni og grét. Grátandi laut hún inn í gröfina og sá tvo engla í hvítum klæðum sitja þar sem líkami Jesú hafði legið, annan til höfða og hinn til fóta. Þeir segja við hana: „Kona, hví grætur þú?“
Sálmur:
147 Sigurhátíð sæl og blíð Ljósið eilíft lýsir nú Drottinn Jesús, líf og ljós Sb. 1871 - Páll Jónsson Bæn dagsins:
Guð, þú ert grundvöllurinn og styrkurinn. Hjá þér getum við hrasað og dottið og þú grípur okkur. Uggur og ótti, ógn og kvíði halda okkur oft í greipum sér. Þau beygja okkur og slá okkur með blindu og málhelti, eins og við værum líflaus og önduð. Hjá þér, Guð, breytist allt, þú lífgar hið dauða, þú gefur nýtt líf, þú, Guð, sem ert grundvöllur og styrkur, og gefur líf í miðjum dauða. Í brauði og víni við borð þitt, er Jesús Kristur, lífgjöf þín. Amen.
|
|||||