Barnadagurinn - 28. desemberVers vikunnar:
„Dýr er í augum Drottins dauði dýrkenda hans. Ég færi þér þakkarfórn, ákalla nafn Drottins.“ (Slm 116.15, 17)
Ég færi þér þakkarfórn,
ákalla nafn Drottins. “ (Slm 116.15, 17)
Textaröð:
B
Lexía:
Jer 31.15-17 Svo segir Drottinn:
Pistill:
Opb 12.1-6 (13-17) Og tákn mikið birtist á himni: Kona klædd sólinni og tunglið var undir fótum hennar og á höfði hennar var kóróna af tólf stjörnum. Hún var þunguð og hljóðaði í jóðsótt með hörðum hríðum. (Þegar drekinn sá að honum var varpað niður á jörðina ofsótti hann konuna sem alið hafði sveinbarnið. Og konunni voru gefnir vængirnir tveir af erninum mikla til þess að hún skyldi fljúga á eyðimörkina til síns staðar þar sem séð verður fyrir þörfum hennar þrjú og hálft ár, fjarri augsýn höggormsins. Höggormurinn spjó vatni úr munni sér á eftir konunni, eins og flóði, til þess að hún bærist burt með straumnum. En jörðin kom konunni til hjálpar og jörðin opnaði munn sinn og svalg vatnsflóðið sem drekinn spjó úr munni sér. Þá reiddist drekinn konunni og fór burt til þess að heyja stríð við aðra afkomendur hennar þá er varðveita orð Guðs og hafa vitnisburð Jesú.)
Guðspjall:
Matt 2.13-18 Þegar vitringarnir voru farnir þá vitrast engill Drottins Jósef í draumi og segir: „Rís upp, tak barnið og móður þess og flý til Egyptalands. Þar skaltu vera uns ég segi þér því að Heródes mun leita barnsins til að fyrirfara því.“
Sálmur:
570 Í Rama heyrðist harmakvein Sem Heródes er heimurinn, Sem Rakel kristin kirkja þrátt Lát huggast, þú vor móðir mædd, Sem brúði sína hann þig heim Helgi Hálfdánarson Bæn dagsins:
Órannsaklegir eru vegir þínir Drottinn Guð. Með órétti og ofbeldi er ljós náðar þinnar gjört að myrkri. Börn falla fyrir sverði illsku og grimmdar. Jafnvel meðal þeirra sem þú hefur sett til að gæta þeirra leynast þau sem granda þeim eða vinna þeim tjón. Opna augu okkar og leyfðu okkur að sjá þig og þína huldu vegi, þegar hin jarðnesku augu greina ekkert nema böl og hörmung sem við skiljum ekki. Leyfðu okkur að hvíla örugg í fami þínum í fullu trausti til þín svo að við megum í kærleika fylgja Jesú Kristi sem blessar börnin og græðir sárin, og gaf líf sitt í dauðann fyrir þau öll og fyrir okkur öll. Þess biðjum við í nafni hans, Því að hann er Drottinn, hann er bróðir okkar og frelsari sem lifir og ríkir að eilífu með þér og heilögum anda Amen.
|
|||||