Dagur Jóhannesar postula og guðspjallamanns - Þriðji jóladagur - 27. desemberVers vikunnar:
„Hversu yndislegir eru á fjöllunum fætur fagnaðarboðans sem friðinn kunngjörir, gleðitíðindin flytur, hjálpræðið boðar og segir við Síon: „Guð þinn er sestur að völdum.““ (Jes 52.7)
Kollekta:
Miskunnsami Drottinn: Þú sem í postulanum Jóhannesi hefur sent kirkju þinni trúfastann vott sannleikans, vér biðjum þig: Upplýs kirkju þína í náð og fullkomna hana í ljósi þínu. Fyrir son þinn Jesú Krist, Drottin vorn, sem með þér lifir og ríkir í einingu heilags anda, einn sannur Guð um aldir alda.
Textaröð:
B
Pistill:
1Jóh 1.1-10 Efni vort er það sem var frá upphafi, það sem við höfum heyrt, það sem við höfum séð með augunum, það sem við horfðum á og hendurnar þreifuðu á, það er orð lífsins. Og lífið var opinberað og við höfum séð það og vottum um það og boðum ykkur lífið eilífa sem var hjá föðurnum og var opinberað okkur. Já, það sem við höfum séð og heyrt það boðum við ykkur einnig, til þess að þið getið líka haft samfélag við okkur. Og samfélag vort er við föðurinn og við son hans Jesú Krist. Þetta skrifum við til þess að fögnuður vor verði fullkominn.
Guðspjall:
Jóh 21.20-24 Pétur sneri sér við og sá lærisveininn, sem Jesús elskaði, fylgja á eftir, þann hinn sama sem hallaðist að brjósti hans við kvöldmáltíðina og spurði: „Drottinn, hver er sá sem svíkur þig?“ Þegar Pétur sér hann segir hann við Jesú: „Drottinn, hvað um þennan?“
Sálmur:
93 Í upphafi var orðið fyrst, Hann var það lífsins ljósið bjart, Hann kom til sinna, kom með frið, En hver, sem tekur honum við Já, Guðs son kom í heiminn hér Valdimar Briem Bæn dagsins:
Guð sem elskar. Þú sem lést son þinn Jesú Krist verða mannsbarn á jörð, og hefur með orðum Jóhannesar guðspjallamanns kynnt hann sem ljós heimsins: Gef að einmitt það ljós renni upp í hjörtum okkar, líkt og þegar sólin rís að morgni og gefur birtu og yl og glæðir lífið, svo að við getum með Jóhannesi borið vitni um ljós heimsins. Þess biðjum við í nafni þess sama sonar þíns Jesú Krists, bróður okkar og Drottins. Amen.
|
|||||