Sunnudagur í föstuinngang (quinquagesima)Vers vikunnar:
„Nú förum við upp til Jerúsalem og mun allt það koma fram sem spámennirnir hafa skrifað um Mannssoninn.“ (Lúk 18.31)
Kollekta:
Vér biðjum þig, Drottinn: Heyr þú í mildi bænir vorar. Leys oss úr viðjum syndanna og varðveit oss gegn öllu illu. Fyrir son þinn Jesú Krist, Drottin vorn, sem með þér lifir og ríkir í einingu heilags anda, einn sannur Guð um aldir alda.
Textaröð:
B
Lexía:
Jes 50.4–11 Drottinn Guð hefur gefið mér lærisveinatungu
Pistill:
1Kor 1.18-25 Því að orð krossins er heimska þeim er stefna í glötun en okkur sem hólpin verðum er það kraftur Guðs. Ritað er:
Guðspjall:
Lúk 18.31-34 Jesús tók þá tólf til sín og sagði við þá: „Nú förum við upp til Jerúsalem og mun allt það koma fram sem spámennirnir hafa skrifað um Mannssoninn. Hann verður framseldur heiðingjum. Þeir munu hæða hann, misþyrma honum og hrækja á hann. Þeir munu húðstrýkja hann og lífláta en á þriðja degi mun hann upp rísa.“
Sálmur:
130 Upp, upp, mín sál og allt mitt geð, Ljúfan Jesú til lausnar mér Innra mig loksins angrið sker, Sál mín, skoðum þá sætu fórn, Hvað stillir betur hjartans böl Hvar fær þú glöggvar, sál mín, séð Ó, Jesús, gef þinn anda mér, Hallgrímur Pétursson (Ps. 1) Bæn dagsins:
Miskunnsami Guð, þú sýndir öllum heimi kærleika þinn og gjörðist hluttakandi í þjáningu heimsins þegar sonur þinn Drottinn Jesús Kristur gaf sjálfan sig til dauða á krossi Við biðjum þig: Opna þú augu okkar að við sjáum leyndardóminn bak við þjáningu hans og dauða. Gef okkur kraft til að fylgja honum í hlýðni og í kærleika í þjónustunni við þau sem hungrar og þyrstir eftir réttlæti og eftir lausn frá böli og þunga í sínu daglega lífi. Fyrir þann sama Son þinn Jesú, bróður okkar og frelsara. Amen.
|
|||||