Gamlárskvöld - Við aftansöng - 31. desember
Litur: Hvítur.
Kollekta:
Almáttugi, eilífi Guð, þú sem hefur verið oss athvarf á liðnu ári: Vér felum oss forsjón þinni á hinu komanda, svo að líf vort megi vegsama þig. Fyrir son þinn Jesú Krist, Drottin vorn, sem með þér lifir og ríkir í einingu heilags anda, einn sannur Guð um aldir alda.
Textaröð:
B
Lexía:
Slm 90.1b-4, 12 Drottinn, þú hefur verið oss athvarf Kenn oss að telja daga vora,
Pistill:
Róm 8.31b-39 Ef Guð er með okkur hver er þá á móti okkur? Hann sem þyrmdi ekki sínum eigin syni heldur framseldi hann fyrir okkur öll, hvort mundi hann ekki líka gefa okkur allt með honum? Hver skyldi ásaka Guðs útvöldu? Það er Guð sem sýknar. Hver sakfellir? Kristur Jesús er sá sem dáinn er. Og meira en það: Hann er upprisinn, hann er við hægri hönd Guðs og hann biður fyrir okkur. Hver mun gera okkur viðskila við kærleika Krists? Mun þjáning geta það eða þrenging, ofsókn, hungur eða nekt, háski eða sverð? Það er eins og ritað er:
Guðspjall:
Lúk 13.6-9 Þá sagði Jesús þeim þessa dæmisögu: „Maður nokkur átti fíkjutré gróðursett í víngarði sínum. Hann kom og leitaði ávaxtar á því og fann ekki. Hann sagði þá við víngarðsmanninn: Í þrjú ár hef ég nú komið og leitað ávaxtar á fíkjutré þessu og ekki fundið. Högg það upp. Hví á það að vera engum til gagns? En hann svaraði honum: Herra, lát það standa enn þetta ár þar til ég hef grafið um það og borið að áburð. Má vera að það beri ávöxt síðan. Annars skaltu höggva það upp.“
Sálmur:
98 Nú árið er liðið í aldanna skaut En hvers er að minnast og hvað er það þá, Hún birtist á vori sem vermandi sól, Hún birtist og reynist sem blessunarlind Nú Guði sé lof fyrir gleðilegt ár Ó, gef þú oss, Drottinn, enn gleðilegt ár Valdimar Briem Bæn dagsins:
Góði Guð. Þú ert eilífur, en okkar tími er takmarkaður. Við leggjum liðið ár í þökk í þínar hendur. Allt hið fagra og góða og allt hið erfiða. Tak frá okkur óttann við hið ókunna sem framundan er og gef okkur sannfæringu um að ekkert geti á hinu komandi ári skilið okkur frá kærleika þínum sem er í Jesú Kristi, syni þínum, sem með þér lifir opg ríkir að eilífu.
|
|||||