Hvítasunnudagur
Litur: Rauður.
Vers vikunnar:
„Ekki með valdi né krafti
heldur fyrir anda minn,
segir Drottinn allsherjar.“
(Sak 4.6b)
Kollekta:
Guð, sem hefur uppfrætt hjörtu trúaðra með ljósi þíns heilaga anda: Veit oss í sama
anda þinum að vita hið rétta og ávallt gleðjast af hans heilögu huggun. Fyrir son
þinn Jesú Krist, Drottin vorn, sem með þér lifir og ríkir í einingu heilags anda,
einn sannur Guð um
aldir alda.
Textaröð:
B
Lexía:
Slm 104.24, 27-30 Hversu mörg eru verk þín, Drottinn? Öll vona þau á þig
Pistill:
Post 2.1-4 (-11) Þá er upp var runninn hvítasunnudagur voru allir saman komnir á einum stað. Varð þá skyndilega gnýr af himni, eins og óveður væri að skella á, og fyllti allt húsið þar sem þeir voru. Þeim birtust tungur, eins og af eldi væru, er kvísluðust og settust á hvert og eitt þeirra. Allir fylltust heilögum anda og tóku að tala öðrum tungum, eins og andinn gaf þeim að mæla.
Guðspjall:
Jóh 14.15-21 Ef þér elskið mig munuð þér halda boðorð mín. Ég mun biðja föðurinn og hann mun gefa yður annan hjálpara sem verður hjá yður að eilífu, anda sannleikans. Heimurinn getur ekki tekið á móti honum því hann sér hann ekki né þekkir. Þér þekkið hann því hann er hjá yður og verður í yður. Ekki mun ég skilja yður eftir munaðarlaus. Ég kem til yðar. Innan skamms mun heimurinn ekki sjá mig framar. Þér munuð sjá mig því ég lifi og þér munuð lifa. Á þeim degi munuð þér skilja að ég er í föður mínum og þér í mér og ég í yður. Sá sem hefur boðorð mín og heldur þau er sá sem elskar mig. En þann sem elskar mig mun faðir minn elska og ég mun elska hann og birta honum hver ég er.“
Sálmur:
724 Leiftra þú, sól, þér heilsar hvítasunna, Ljóma þú, jörð, þér lýsir hvítasunna, Geisla þú, sál, mót sól þíns lífs og fagna, Lýstu mér, sólin hvíta, heita, bjarta, Sigurbjörn Einarsson Bæn dagsins:
Huggunar-andi og eldur Guðs,
lífskraftur alls hins skapaða,
í þér mætum við Guði.
Þú safnar saman hinum villuráfandi,
birtir þeim sannleikann
og lætur þau skilja hvert annað.
Þökk sé þér fyrir það.
Amen.
|
|||||