Jónsmessa - 24. júníVers vikunnar:
„Þetta er vitnisburður Jóhannesar skírara: „Hann á að vaxa en ég að minnka.““ (Jóh 3.30)
Kollekta:
Drottinn Guð, upphaf og skapari alls ljóss. Þú sem valdir Jóhannes í móðurlífi til að bera vitni um ljósið sem upplýsir öll börnin þín. Vér biðjum þig: Gef oss náð til þess að helga líf vort því ljósi eins og Jóhannes, svo að Kristur vaxi og verði máttugur í oss. Fyrir son þinn Jesú Krist, Drottinn vorn, sem með þér lifir og ríkir í einingu heilags anda frá eilífð til eilífðar. Amen.
Textaröð:
B
Lexía:
Jes 40.1-8 Huggið, huggið lýð minn,
Pistill:
Post 17.22-31 Þá sté Páll fram á miðri Aresarhæð og tók til máls: „Aþeningar, þið komið mér svo fyrir sjónir að þið séuð í öllum greinum miklir trúmenn því að ég gekk hér um og hugði að helgidómum ykkar og fann þá meðal annars altari sem á er ritað: Ókunnum guði. Þetta sem þið nú dýrkið og þekkið ekki, það boða ég ykkur. Guð, sem skóp heiminn og allt sem í honum er, hann, sem er herra himins og jarðar, býr ekki í musterum sem með höndum eru gerð. Ekki verður honum heldur þjónað með höndum manna, eins og hann þyrfti nokkurs við, þar sem hann sjálfur gefur öllum líf og anda og alla hluti. Hann skóp og af einum allar þjóðir manna og lét þær byggja allt yfirborð jarðar er hann hafði ákveðið setta tíma og mörk bólstaða þeirra. Hann vildi að þær leituðu Guðs ef verða mætti þær þreifuðu sig til hans og fyndu hann. En eigi er hann langt frá neinum af okkur. Í honum lifum, hrærumst og erum við. Svo hafa og sum skáld ykkar sagt: Því að við erum líka hans ættar. Fyrst við erum nú Guðs ættar megum við eigi ætla að guðdómurinn sé líkur smíði af gulli, silfri eða steini, gerðri með hagleik og hugviti manna. Guð hefur umborið vanvisku liðinna tíma. En nú boðar hann mönnum hvarvetna að allir skuli snúa sér til hans því að hann hefur sett dag er hann mun láta mann, sem hann hefur fyrirhugað, dæma heimsbyggðina með réttvísi. Þetta hefur hann sannað öllum mönnum með því að reisa hann frá dauðum.“
Guðspjall:
Lúk 1.57-66 Nú kom sá tími að Elísabet skyldi verða léttari og ól hún son. Og nágrannar hennar og ættmenn heyrðu hversu mikla miskunn Drottinn hafði auðsýnt henni og samfögnuðu henni.
Sálmur:
Jónsmessuhymni úr Hólabókinni Eilífum Föður öll hans hjörð Hann öllum bauð að hafna synd, Hér með þá lýður hræddur var, Staðfastur þennan boðskap ber, Farisearnir fróman mann Ó, faðir þig áköllum vér Úr Hólabókinni 1589. Philipp Melanchthon Bæn dagsins:
Guð, huggun kirkju þinnar. Þú lést Jóhannes skírara undirbúa veginn fyrir komu sonar þíns Jesú Krists. Hjálpa þú okkur að fylgja dæmi hans og hlýða kalli hans til að fylgja vegi hjálpræðisins, fyrir Jesú Krist bróður okkar og Drottin. Amen.
|
|||||