Næstsíðasti sunnudagur kirkjuársins
Litur: Grænn.
Vers vikunnar:
„Því að öllum ber okkur að birtast fyrir dómstóli Krists.“ (2Kor 5.10a)
Kollekta:
Miskunnsami, eilífi Guð: Vek þú oss nýjan vilja og þrá að lifa þér og veit oss til þess mátt kærleika þíns, að vér sakir náðar þinnar fáum borið ávöxt í öllu góðu og öðlast þitt eilífa líf. Fyrir son þinn Jesú Krist, Drottin vorn, sem með þér lifir og ríkir í einingu heilags anda, einn sannur Guð um aldir alda.
Textaröð:
B
Lexía:
Jes 66.10-13 Gleðjist með Jerúsalem og fagnið í henni,
Pistill:
Opb 15.2-4 Og ég leit sem glerhaf eldi blandið. Þeir sem höfðu unnið sigur á dýrinu og líkneski þess, og létu töluna sem táknar nafn þess ekki villa um fyrir sér, stóðu við glerhafið og héldu á hörpum Guðs. Þeir sungu söng Móse, þjóns Guðs, og söng lambsins:
Guðspjall:
Matt 11.25-30 Á þeim tíma tók Jesús svo til orða: „Ég vegsama þig, faðir, Drottinn himins og jarðar, að þú hefur hulið þetta spekingum og hyggindamönnum en opinberað það smælingjum. Já, faðir, svo var þér þóknanlegt.
Sálmur:
204 Fyrir þá alla, er fá nú hvíld hjá þér, Þú varst þeim sjálfur varnarskjólið traust, Ó, mættum vér gegn heimi heyja stríð, Þótt hugdirfð bregðist, hjartans kólni glóð, Í vestri kvöldsins bjarmi boðar frið, Og sjá - þá aftur dýrri dagur skín, How - Valdimar V. Snævarr Bæn dagsins:
Drottinn, hjálpa mér að efast ekki um að þú ert Guð - að Jesús er frelsari minn - að þú ert hjá mér með heilögum anda þínum. Amen.
|
|||||