Nýársdagur Í Jesú nafni -Áttidagur jóla – 1. janúar
Litur: Hvítur.
Vers vikunnar:
„Hvað sem þið segið eða gerið, gerið það allt í nafni Drottins Jesú og þakkið Guði föður með hjálp hans.“ (Kól 3.17)
Kollekta:
Drottinn Guð, eilífi faðir, sem gafst oss einkason þinn að frelsara og bauðst, að hann skyldi heita Jesús: Veit oss af náð þinni, að vér sem tignum heilagt nafn hans á jörðu, fáum hann sjálfan að sjá og tilbiðja á himnum, því að hann lifir og ríkir með þér í einingu heilags anda, einn sannur Guð um aldir alda.
Textaröð:
B
Lexía:
4Mós 6.22-27 Drottinn talaði til Móse og sagði:
Pistill:
Post 10.42-43 Og hann bauð okkur að prédika fyrir alþjóð og vitna að hann er sá sem Guð hefur skipað dómara lifenda og dauðra. Honum bera allir spámennirnir vitni að sérhver sem trúir á hann fái vegna hans fyrirgefningu syndanna.“
Guðspjall:
Jóh 2.23-25 Meðan hann var í Jerúsalem á páskahátíðinni fóru margir að trúa á hann því þeir sáu þau tákn sem hann gerði. En Jesús gaf þeim ekki trúnað sinn því hann þekkti alla. Hann þurfti þess ekki að neinn bæri öðrum manni vitni. Hann vissi sjálfur hvað í manni býr.
Sálmur:
105 Í Jesú nafni áfram enn Í nafni hans æ nýtt er ár, Í nafni hans sé niður sáð Í nafni hans sé starf og stríð, Í nafni hans, þótt haust sé kalt, Í nafni hans vér hljótum ró, Í Jesú nafni endar ár, Á hverri árs- og ævitíð Sb. 1886 - Valdimar Briem Bæn dagsins:
Jesús Kristur. Þar sem þú ert þar víkur óttinn og óvissan. Með þér viljum við byrja hið nýja ár og þiggja úr þinni hendi það sem það geymir handa okkur af gleði og af sorgum. Lát hið nýja ár verða náðarár þar sem við lifum af gæsku þinni og gefum hana öðrum. Dýrð sé þér Drottinn. Amen.
|
|||||