ÖskudagurKollekta:
Miskunnsami Guð, þú sem fyrirgefur þeim sem iðrast synda sinna, gef einnig oss sanna iðrun og fyrirgefningu synda vorra. Fyrir son þinn Jesú Krist, Drottin vorn, sem með þér lifir og rÃkir à einingu heilags anda, einn sannur Guð um aldir alda.
Textaröð:
B
LexÃa:
Jl 2.12-18 En jafnvel nú,
Pistill:
2Pét 1.3-12 Með guðlegum mætti sÃnum hefur Jesús Kristur gefið okkur allt sem þarf til lÃfs à guðrækilegri breytni, með þekkingunni á honum sem hefur kallað okkur með dýrð sinni og dáð. Með þvà hefur hann veitt okkur dýrmæt og háleit fyrirheit sem fela à sér að þið komist undan spillingunni à heiminum sem girndin veldur og verðið hluttakendur à guðlegu eðli. Leggið þess vegna alla stund á að sýna à trú ykkar dygð og à dygðinni þekkingu, à þekkingunni sjálfsaga, à sjálfsaganum þolgæði, à þolgæðinu guðrækni, à guðrækninni bróðurelsku og à bróðurelskunni kærleika. Ef þið hafið þetta til að bera og vaxið à þvà verðið þið hvorki iðjulaus né mun þekking ykkar á Drottni vorum Jesú Kristi reynast dáðlaus og ávaxtalaus. En sá sem ekki hefur þetta til að bera er blindur à skammsýni sinni og hefur misst sjónar á að hann hafi verið hreinsaður af fyrri syndum sÃnum.
Guðspjall:
Matt 6.16-21 Þegar þér fastið þá verið ekki döpur à bragði eins og hræsnarar. Þeir afmynda andlit sÃn svo að engum dyljist að þeir fasta. Sannlega segi ég yður, þeir hafa tekið út laun sÃn. En þegar þú fastar þá smyr höfuð þitt og þvo andlit þitt svo að menn verði ekki varir við að þú fastir heldur faðir þinn sem er à leynum. Og faðir þinn, sem sér à leynum, mun umbuna þér.
Sálmur:
309 Ó, Jesús að mér snú Þegar ég hrasa hér, Oft lÃt ég upp til þÃn, HallgrÃmur Pétursson (PS 12) Bæn dagsins:
Guð, skapari og Drottinn tÃmans og allra tÃma. Þegar tÃmi hins glaðlega kæruleysis er liðinn verður okkur ljóst hvað það er sem gerir lÃf okkar erfitt. Þjáning og dauði, raunir og freistingar, vonbrigði og vinslit vitja okkar. Gef okkur styrk á dimmum stundum með birtu vonarinnar um framtÃð með þér, fyrir Jesú Krist, bróður okkar og frelsara. Amen.
|
|||||