Pálmasunnudagur
Litur: Fjólublár. Dýrðarsöngur/lofgjörð ekki sungin.
Vers vikunnar:
„Þannig á Mannssonurinn að verða upp hafinn svo að hann veiti hverjum sem trúir á hann eilíft líf.“ (Jóh 3.14b-15)
Kollekta:
Eilífi Guð, sem lést son þinn, frelsara vorn, Jesú Krist, auðmýkja sig og ganga í dauðann á krossi: Veit oss af miskunn þinni að líkjast honum í hógværð hjartans og eignast hlutdeild í upprisu hans, sem með þér lifir og ríkir í einingu heilags anda, einn sannur Guð um aldir alda.
Textaröð:
B
Lexía:
Jes 49.13-16 Lofsyngið himnar, fagna þú jörð,
Pistill:
2Kor 2.14-17 En Guði séu þakkir sem fer með mig í óslitinni sigurför Krists og lætur mig alls staðar breiða út þekkinguna um sig eins og þekkan ilm. Því að Guði til dýrðar er ég ilmur sem flyt Krist bæði til þeirra sem frelsast og til þeirra sem glatast. Þeim sem glatast er ég banvænn daunn til dauða, hinum lífgandi ilmur til lífs. Og hver er til þessa hæfur? Ekki er ég eins og hinir mörgu er pranga með Guðs orð heldur flyt ég það af hreinum huga frá Guði frammi fyrir augliti Guðs með því að ég er í samfélagi við Krist.
Guðspjall:
Mrk 14.3-9 Jesús var í Betaníu, í húsi Símonar líkþráa, og sat að borði. Þá kom þar kona og hafði alabastursbuðk með ómenguðum, dýrum nardussmyrslum. Hún braut buðkinn og hellti yfir höfuð honum. En þar voru nokkrir er gramdist þetta og þeir sögðu sín á milli: „Til hvers er þessi sóun á smyrslum? Þessi smyrsl hefði mátt selja fyrir meira en þrjú hundruð denara og gefa fátækum.“ Og þeir atyrtu hana.
Sálmur:
128 Ó, kom í hátign, Herra minn. Ó, kom í hátign, Herra minn, Ó, kom í hátign, Herra minn, Ó, kom í hátign, Herra minn, Ó, kom í hátign, Herra minn, Milman - Sb. 1871 Stefán Thorarensen Bæn dagsins:
Drottinn Jesús Kristur. Fólkið kom á móti þér með fagnaðarópum og hyllti þig. Samt skildi það þig eftir einan svo að þú yrðir pyntaður og deyddur. Við erum hrædd við dökku hliðarnar á mannlífinu, hrædd við skuggana, hrædd við möguleika illskunnar í mannfólkinu, og í okkur sjálfum. Gefðu okkur náð til að þekkja okkur sjálf og að sjá hvað í okkur sjálfum býr. Hjálpa þú okkur að koma með það allt til þín að þú blessir það og bætir það með kærleika þínum. Amen.
|
|||||