Páskadagur
Litur: Hvítur.
Vers vikunnar:
„Ég dó en nú lifi ég um aldir alda og ég hef lykla dauðans og heljar.“ (Opb 1.18b)
Andstef: Drottinn er upprisinn, hann er sannarlega upprisinn.
Kollekta:
Eilífi Guð og faðir, þú sem með sigri einkasonar þína á dauðanum hefur opnað oss dyrnar til eilífs lífs: Hjálpa oss, að sú góða von og þrá sem þú hefur með oss vakið, megi lifa og dafna hjá þér. Fyrir son þinn Jesú Krist, Drottin vorn, sem með þér lifir og ríkir í einingu heilags anda, einn sannur Guð um aldir alda.
Textaröð:
B
Lexía:
Jes 25.6-9 Drottinn allsherjar mun á þessu fjalli
Pistill:
1Kor 15.1-8a Ég minni ykkur, systkin, á fagnaðarerindið sem ég boðaði ykkur, sem þið og veittuð viðtöku og þið standið einnig stöðug í. Það mun og frelsa ykkur ef þið haldið fast við það sem ég boðaði ykkur, ella hafið þið til einskis tekið trú. Því það kenndi ég ykkur fyrst og fremst, sem ég einnig hef meðtekið, að Kristur dó vegna synda okkar samkvæmt ritningunum, að hann var grafinn, að hann reis upp á þriðja degi samkvæmt ritningunum og að hann birtist Kefasi, síðan þeim tólf. Því næst birtist hann meira en fimm hundruð bræðrum í einu sem flestir eru á lífi allt til þessa en nokkrir eru sofnaðir. Síðan birtist hann Jakobi, því næst postulunum öllum.
Guðspjall:
Matt 28.1-8 Að liðnum hvíldardegi, þegar lýsti af fyrsta degi vikunnar, komu þær María Magdalena og María hin til að líta á gröfina. Þá varð landskjálfti mikill því engill Drottins sté niður af himni, kom og velti steininum og settist á hann. Hann var sem elding ásýndum og klæðin hvít sem snjór. Varðmennirnir skulfu af hræðslu við hann og urðu sem örendir.
Sálmur:
148 Í austri rís upp ársól skær, Það ógnarbjarg er oltið frá, Í Drottins gröf varð blítt og bjart, Þig boða englar upprisinn, Sem upp rís sól um árdagsstund Sb. 1886 - Valdimar Briem Bæn dagsins:
Lifandi Drottinn, með upprisu Sonar þíns hefur þú tekið allan mátt frá dauðanum, og lætur kunngjöra öllum heimi fagnaðarboðskapinn um hjálpræðið í Jesú Kristi. Sendu okkur styrk og kraft trúarinnar og sigra efann. Leyfðu okkur öllum að taka með fögnuði undir lofsöng páskanna,með öllum þeim sem bera vitni um að Kristur er risinn upp frá dauðum og lifir og ríkir að eilífu. Amen.
|
|||||