1. sunnudagur eftir páska (quasi modo geniti)
Litur: Hvítur.
Vers vikunnar:
„Lofaður sé Guð og faðir Drottins vors Jesú Krists sem eftir mikilli miskunn sinni hefur endurfætt oss til lifandi vonar fyrir upprisu Jesú Krists frá dauðum.“ (1Pét 1.3)
Kollekta:
Almáttugi, eilífi Guð, vér biðjum þig: Veit oss, sem höfum haldið heilaga upprisuhátíð Drottins, náð þína til þess að lifa í ljósi hennar og þjóna í sannri trú og kærleika syni þínum og Drottni vorum Jesú Krist, sem með þér lifir og ríkir í einingu heilags anda, einn sannur Guð um aldir alda.
Textaröð:
B
Lexía:
Slm 116.1-9 Ég elska Drottin
Pistill:
1Kor 15.12-21 Ef við nú prédikum að Kristur sé upprisinn frá dauðum, hvernig geta þá nokkur ykkar sagt að dauðir rísi ekki upp? Ef ekki er til upprisa dauðra, þá er Kristur ekki heldur upprisinn en ef Kristur er ekki upprisinn, þá er ónýt prédikun okkar, ónýt líka trú ykkar. Við reynumst þá vera ljúgvottar um Guð þar eð við höfum vitnað um Guð að hann hafi uppvakið Krist, sem hann hefur ekki uppvakið, svo framarlega sem dauðir rísa ekki upp. Ef dauðir rísa ekki upp er Kristur ekki heldur upprisinn en ef Kristur er ekki upprisinn er trú ykkar fánýt. Syndir ykkar eru þá ekki enn í burtu teknar. Þá eru einnig þau glötuð sem sofnuðu í trú á Krist. Ef von okkar til Krists nær aðeins til þessa lífs, þá erum við aumkunarverðust allra manna.
Guðspjall:
Jóh 21.1-14 Eftir þetta birtist Jesús lærisveinunum aftur og þá við Tíberíasvatn. Hann birtist þannig: Þeir voru saman: Símon Pétur, Tómas, kallaður tvíburi, Natanael frá Kana í Galíleu, Sebedeussynirnir og tveir enn af lærisveinum hans. Símon Pétur segir við þá: „Ég fer að fiska.“
Sálmur:
159 Að luktum dyrum kom lausnarinn Í Eden forðum var lokuð leið Og enn er þó harðlæst hjarta manns Og eitt sinn grafar hið dimma djúp Og lífsins bók er þó lokað enn Sb. 1886 - Valdimar Briem Bæn dagsins:
Drottinn Jesús Kristur, þegar við mætum þér lýkst upp fyrir okkur, að meira að segja hlið heljar eru ekki lokuð lengur, því að þú opnaðir dauðraríkið þegar þú reist upp frá dauðum og settir líf í stað dauða. Og við sem vorum þreytt og uppgefin, orðlaus og vonlaus eins og mörg þeirra sem fylgdu þér forðum, við fengum nýjan kraft. Við réttum úr okkur og horfðum glöð fram á veginn, þegar þú snertir okkur með kærleika þínum og með anda þínum, og við fundum hið nýja líf sem vex og dafnar og sáum og heyrðum að vonin breiðist út, því að þú ert sá sem hjálpar og frelsar, alltaf og allsstaðar. Amen.
|
|||||