Stefánsdagur frumvotts - Annar jóladagur - 26.desember
Þegar annar jóladagur er haldinn sem minningardagur um djáknann Stefán, fyrsta pÃslarvott kristninnar eru lestrar og bænir sem hér segir.
Litur: Rauður.
Vers vikunnar:
„Og Orðið varð hold, hann bjó með oss, fullur náðar og sannleika og vér sáum dýrð hans,“ (Jóh 1.14)
Kollekta:
Vér biðjum þig, Drottinn, hjálpa þú oss að breyta eins og vottur þinn, Stefán, sem vér minnumst à dag, svo að vér lærum að elska óvini vora, biðja fyrir þeim, sem ofsækja oss og fela þá miskunn þinni. Fyrir son þinn Jesú Krist, Drottin vorn, sem með þér lifir og rÃkir à einingu heilags anda, einn sannur Guð um aldir alda.
Textaröð:
B
LexÃa:
2Kro 24.17-21 Eftir andlát Jójada komu höfðingjar Júda og sýndu konungi lotningu. Konungur hlustaði á þá og þeir yfirgáfu hús Drottins, Guðs feðra sinna, og tóku að þjóna Asérustólpum og öðrum skurðgoðum. Vegna þessa afbrots kom heiftarreiði yfir Júda og Jerúsalem. Drottinn sendi þvà spámenn til þeirra til þess að snúa þeim aftur til Drottins. Spámennirnir áminntu þá en þeir hlustuðu ekki. Þá kom andi Guðs yfir SakarÃa, son Jójada prests. Hann gekk fram fyrir fólkið og sagði: „Svo segir Guð: Hvers vegna brjótið þið gegn fyrirmælum Drottins? Þannig mun ykkur ekki vel farnast þvà að Drottinn yfirgefur ykkur ef þið yfirgefið hann.“
Pistill:
Post 6.8-15 og 7.55-60 Stefán var fullur af náð og krafti og gerði undur og tákn mikil meðal fólksins. Þá komu til nokkrir menn úr svonefndri Leysingjasamkundu. Þeir voru frá Kýrene og AlexandrÃu en aðrir frá KilikÃu og AsÃu og tóku að þrátta við Stefán. En þeir gátu ekki staðið gegn þeirri visku og anda sem hann talaði af. Þá fengu þeir menn nokkra til að segja: „Við höfum heyrt hann tala lastmæli gegn Móse og Guði.“ Þeir æstu upp fólkið, öldungana og fræðimennina og þeir veittust að honum, gripu hann og færðu hann fyrir ráðið. Þá leiddu þeir fram ljúgvotta er sögðu: „Þessi maður talar sÃfellt gegn þessum heilaga stað og lögmálinu. Við höfum heyrt hann segja að þessi Jesús frá Nasaret muni brjóta niður musterið og breyta þeim siðum sem Móse hefur sett okkur.“ Allir sem à ráðinu sátu störðu á hann og sáu að ásjóna hans var sem engils ásjóna. En hann horfði til himins, fullur af heilögum anda og leit dýrð Guðs og Jesú standa til hægri handar Guði og sagði: „Ég sé himnana opna og Mannssoninn standa til hægri handar Guði.“
Guðspjall:
Matt 23.34-39 Þess vegna sendi ég til yðar spámenn, spekinga og fræðimenn. Suma þeirra munuð þér lÃfláta og krossfesta, aðra húðstrýkja à samkundum yðar og ofsækja borg úr borg. Þannig kemur yfir yður allt saklaust blóð sem úthellt hefur verið á jörðinni, frá blóði Abels hins réttláta til blóðs SakarÃa BarakÃasonar sem þér drápuð milli musterisins og altarisins. Sannlega segi ég yður: Allt mun þetta lenda á þessari kynslóð.
Sálmur:
203 Sæll er hver, sem deyr à Drottni. Heiður, lotning, lofgjörð stærsta, Eigi máni' og eigi sunna Klopstock - Helgi Hálfdánarson Bæn dagsins:
Himneski faðir þú sem sendir son þinn à heiminn til þess að vera lausnari okkar. Við þökkum þér fyrir Stefán og fyrir þau öll sem þurftu að þola ofbeldi og dauða vegna trúarinnar. Hjálpa þú okkur að horfa til Krists og fyrir eftirfylgd og kross ná um sÃðir þangað sem við sjáum hann à dýrð sinni, þar sem hann lifir og rÃkir með þér og heilögum anda að eilÃfu. Amen.
|
|||||