Sunnudagur milli jóla og nýárs
Litur: Hvítur.
Vers vikunnar:
„Nú lætur þú, Drottinn, þjón þinn í friði fara,eins og þú hefur heitið mér,því að augu mín hafa séð hjálpræði þitt.“ (Lúk 2.29-30)
Kollekta:
Almáttugi, eilífi Guð: Bein þú athöfnum vorum að því sem þér er þóknanlegt, svo að vér verðum auðug að góðum verkum. Fyrir son þinn Jesú Krist, Drottin vorn, sem með þér lifir og ríkir í einingu heilags anda, einn sannur Guð um aldir alda.
Textaröð:
B
Lexía:
1Sam 1.19b-23 (-28) Elkana kenndi Hönnu, konu sinnar, og Drottinn minntist hennar og varð hún þunguð. Í lok ársins fæddi hún son og nefndi hann Samúel, „af því að ég hef beðið Drottin um hann“. (Þegar hún hafði vanið hann af brjósti fór hún með hann með sér upp eftir. Hún hafði einnig með sér þriggja vetra naut, eina efu mjöls og vínbelg. Hún fór með drenginn í hús Drottins í Síló en hann var enn mjög ungur.
Pistill:
Heb 1.1-4 Guð talaði fyrrum oftsinnis og með mörgu móti til feðranna fyrir munn spámannanna. En nú í lok þessara daga hefur hann til okkar talað í syni sínum sem hann setti erfingja allra hluta. Fyrir hann hefur hann líka heimana gert. Hann, sem er ljómi dýrðar hans og ímynd veru hans og ber allt með orði máttar síns, hreinsaði okkur af syndum okkar og settist til hægri handar hátigninni á hæðum.
Guðspjall:
Lúk 2.22-33 En er hreinsunardagar þeirra voru úti eftir lögmáli Móse fóru þau með hann upp til Jerúsalem til að færa hann Drottni, en svo er ritað í lögmáli Drottins: „Allt karlkyns, er fyrst fæðist af móðurlífi, skal helgað Drottni,“ og til að bera fram fórn, eins og segir í lögmáli Drottins, „tvær turtildúfur eða tvær ungar dúfur“.
Sálmur:
421 Brátt líður lífs á daginn, Þú, Drottinn, tíma telur Lát þjón þinn fara' í friði, Í faðmi sér hann hafði Æ, kom, svo frið þinn fái ég, Stefán Thorarensen Bæn dagsins:
Eilífi Guð, miskunnsami faðir,
þú leyfðir öldungnum Símeoni
að sjá frelsarann
og kenndir honum eins og ekkjunni Önnu
orð til að lofa lausnarann.
Opna augu okkar,
að við sjáum geislandi birtu kærleika þíns
í syni þínum Jesú Kristi
sem með þér og heilögum anda
lifir og ríkir að eilífu.
Amen.
|
|||||