Sunnudagur milli nýárs og þrettánda
Litur: HvÃtur.
Vers vikunnar:
"þvà að þÃn vegna býður hann út englum sÃnum
til þess að gæta þÃn á öllum vegum þÃnum."
(Slm 91.11)
Kollekta:
Drottinn Guð, þú sem lést stjörnu vÃsa heiðingjum veg til einkasonar þÃns: Unn oss, sem nú þekkjum þig fyrir trúna, að fá um sÃðir að lÃta fegurð hátignar þinnar. Fyrir son þinn Jesú Krist, Drottin vorn, sem með þér lifir og rÃkir à einingu heilags anda, einn sannur Guð um aldir alda.
Textaröð:
B
LexÃa:
Jes 61.10-62.3 Ég gleðst yfir Drottni, Sökum SÃonar get ég ekki þagað
Pistill:
1Jóh 3.1-3 Sjáið hvÃlÃkan kærleika faðirinn hefur auðsýnt okkur, að við skulum kallast Guðs börn. Og það erum við. Heimurinn þekkir okkur ekki vegna þess að hann þekkti hann ekki. Þið elskuðu, nú þegar erum við Guðs börn og það er enn þá ekki orðið bert hvað við munum verða. Við vitum að þegar hann birtist, þá verðum við honum lÃk þvà að við munum sjá hann eins og hann er. Hver sem hefur þessa von til hans hreinsar sjálfan sig eins og Kristur er hreinn.
Guðspjall:
Matt 2.13-15 Þegar vitringarnir voru farnir þá vitrast engill Drottins Jósef à draumi og segir: „RÃs upp, tak barnið og móður þess og flý til Egyptalands. Þar skaltu vera uns ég segi þér þvà að Heródes mun leita barnsins til að fyrirfara þvÃ.“
Sálmur:
105 Ó, hve dýrleg er að sjá Nóttin helga hálfnuð var, Þegar stjarna' á himni hátt Vitringar úr austurátt Stjarnan skær þeim lýsti leið, Stjarnan veitt oss einnig er, Villustig sú aldrei á Grundtvig - Sb. 1886 - Stefán Thorarensen Bæn dagsins:
Guð, ljós þitt skÃn à myrkrinu. Kraftur þinn styrkir hin þreyttu. Mildi þin snertir þau öll sem þÃn leita. Við treystum þér og felum þér lÃf okkar og framtÃð. Þú ert lif og ljós að eilÃfu. Amen.
|
|||||