3. sunnudagur eftir þrettánda
Litur: Grænn.
Vers vikunnar:
„Þá munu menn koma frá austri og vestri, frá norðri og suðri og sitja til borðs í Guðs ríki.“ (Lúk 13.29)
Kollekta:
Almáttugi, eilífi Guð: Lít í líkn á veikleika vorn og réttu þína voldugu hönd til verndar oss. Fyrir son þinn Jesú Krist, Drottin vorn, sem með þér lifir og ríkir í einingu heilags anda, einn sannur Guð um aldir alda.
Textaröð:
B
Lexía:
Hós 2.20-25 Á þeim degi geri ég sáttmála fyrir Ísraelsmenn
Pistill:
Heb 11.1-3, 6 Trúin er fullvissa um það sem menn vona, sannfæring um þá hluti sem eigi er auðið að sjá. Fyrir trú hlutu mennirnir fyrr á tíðum velþóknun Guðs. Ógerlegt er að þóknast Guði án trúar því að sá sem vill nálgast Guð verður að trúa því að hann sé til og að hann umbuni þeim er leita hans.
Guðspjall:
Lúk 17.5-10 Postularnir sögðu við Drottin: „Auk oss trú!“
Sálmur:
207 Sú, trú, sem fjöllin flytur, Minn Jesús, lát ei linna Í trú mig styrk að stríða Helgi Hálfdánarson Bæn dagsins:
Guð, þú sem bjargar, þú gefur og skapar þú viðheldur og fullkomnar, með heilögu orði þínu. Tala þú orð þitt einnig inn í okkar neyð og ótta, svo að við vinnum bug á þeim með þinni aðstoð og þökkum þér hjálp þína fyrir Jesú Krists. Amen.
|
|||||