5. sunnudagur eftir þrettánda
Litur: Grænn.
Vers vikunnar:
„Hann [Drottinn] mun leiða það í ljós sem í myrkrinu er hulið og afhjúpa allt sem í hjarta dylst.“ (1Kor 4.5)
Kollekta:
Vér biðjum þig, Drottinn: Varðveit þú með stöðugri föðurelsku söfnuð þinn, sem vonar á þig. Lát hann ávallt njóta verndar þinnar. Fyrir son þinn Jesú Krist, Drottin vorn, sem með þér lifir og ríkir í einingu heilags anda, einn sannur Guð um aldir alda.
Textaröð:
B
Lexía:
5Mós 30.15-20 Hér með legg ég fyrir þig líf og heill, dauða og óheill.
Pistill:
Gal 5.22-26 En ávöxtur andans er: kærleiki, gleði, friður, langlyndi, gæska, góðvild, trúmennska, hógværð og sjálfsagi. Gegn slíku er lögmálið ekki. En þeir sem trúa á Krist hafa krossfest holdið með ástríðum þess og girndum.
Guðspjall:
Matt 13.44-52 Enn sagði Jesús: „Líkt er himnaríki fjársjóði sem fólginn var í jörðu og maður fann og leyndi. Í fögnuði sínum fór hann, seldi allar eigur sínar og keypti akur þann.
Sálmur:
298 Ó, Herra Guð, lát hjá oss mætast Lát svikaspár ei sálir villa Að þitt nú, Drottinn, orð vér eigum, Landstad - Helgi Hálfdánarson Bæn dagsins:
Góði Guð, þú lætur okkur ekki ein heldur kallar okkur með orði þínu aftur og aftur á réttan veg lífsins. Gef að við hlustum alltaf á þig þegar þú kallar og að við séum alltaf hjá svo að trúin beri góðan ávöxt, fyrir Jesú Krist bróður okkar og Drottin. Amen.
|
|||||