6. (síðasti) sunnudagur eftir þrettánda - Ummyndun
Litur: Hvítur.
Vers vikunnar:
„Því að Guð sem sagði: „Ljós skal skína fram úr myrkri!“ lét það skína í hjarta mitt til þess að birtu legði af þekkingunni á dýrð Guðs eins og hún skín frá ásjónu Jesú Krists.“ (2Kor 4.6)
Kollekta:
Guð, sem staðfestir leyndardóma trúarinnar fyrir dýrlega ummyndum þíns elskaða sonar: Veit af náð þinni að vér megum verða samarfar ríkis hans og hluttakendur í dýrð hans, sem með þér lifir og ríkir í einingu heilags anda, einn sannur Guð um aldir alda.
Textaröð:
B
Lexía:
Slm 89.2-9 Um náðarverk Drottins vil ég syngja að eilífu
Pistill:
2Kor 3.12-4.2 Þar eð ég nú hef slíka von þá kem ég fram með mikilli djörfung. Ég geri ekki eins og Móse sem setti skýlu fyrir andlit sér til þess að Ísraelsmenn skyldu ekki horfa á ljóma þess sem var að hverfa. En hugur þeirra varð sljór. Því allt til þessa dags hvílir sama skýlan yfir upplestri hins gamla sáttmála og henni hefur ekki verið svipt burt því að Kristur einn lætur hana hverfa. Já, allt til þessa dags hvílir skýla yfir hjörtum þeirra hvenær sem lesið er úr lögmáli Móse. En „þegar einhver snýr sér til Drottins er skýlan tekin burt“. Drottinn er andinn og þar sem andi Drottins er, þar er frelsi. En við sjáum öll með óhjúpuðu andliti dýrð Guðs endurspeglast í Kristi og andi hans lætur okkur umbreytast eftir þeirri sömu mynd til enn meiri dýrðar. Guð hefur sýnt mér miskunn og falið mér þessa þjónustu. Þess vegna læt ég ekki hugfallast. Ég hafna allri skammarlegri launung, ég beiti ekki klækjum né falsa Guðs orð heldur birti ég sannleikann. Guð veit að ég skírskota til samvisku hvers manns um sjálfan mig.
Guðspjall:
Mrk 9.2-9 Eftir sex daga tekur Jesús með sér þá Pétur, Jakob og Jóhannes og fer með þá upp á hátt fjall að þeir væru einir saman. Þar ummyndaðist hann fyrir augum þeirra og klæði hans urðu fannhvít og skínandi og fær enginn bleikir á jörðu svo hvítt gert. Og Elía og Móse birtust þeim og voru þeir á tali við Jesú. Þá tekur Pétur til máls og segir við Jesú: „Meistari, gott er að við erum hér. Gerum þrjár tjaldbúðir, þér eina, Móse eina og Elía eina.“ Hann vissi ekki hvað hann átti að segja enda urðu þeir mjög skelfdir.
Sálmur:
119 Þótt holdið liggi lágt og læst í dróma, Hér niðri' á láði' er lágt Hér niðri' í djúpum dal Ó, hér er hark og stríð Þar tignartindi á Ég bjart lít blika ský Valdimar Briem Bæn dagsins:
Drottinn Jesús Kristur, send ljóma dýrðar þinnar í hjörtu okkar svo að við getum borið vitni um ljós þitt í miðju myrkri þessa heims. Því að þú lifir og ríkir með föður og anda og hefur á öllu vald til eilífðar. Amen.
|
|||||