Þrettándinn (Birtingarhátíð Drottins) - 6. janúar
Litur: Hvítur.
Vers vikunnar:
„Myrkrið er að hverfa og hið sanna ljós er þegar farið að skína.” (1Jóh 2.8)
Kollekta:
Drottinn Guð, þú sem lést stjörnu vísa heiðingjum veg til einkasonar þíns: Unn oss, sem nú þekkjum þig fyrir trúna, að fá um síðir að líta fegurð hátignar þinnar. Fyrir son þinn Jesú Krist, Drottin vorn, sem með þér lifir og ríkir í einingu heilags anda, einn sannur Guð um aldir alda.
Textaröð:
B
Lexía:
Jes 60.1-6 Statt upp, skín þú, því að ljós þitt kemur
Pistill:
Ef 3.2-12 Víst hafið þið heyrt um þá náð sem Guð hefur sýnt mér og um það hlutverk sem hann hefur falið mér hjá ykkur: Með opinberun birtist mér leyndardómurinn. Um það hef ég stuttlega skrifað áður. Þegar þið lesið það getið þið skynjað hvað ég veit um leyndardóm Krists. Hann var ekki birtur mannanna börnum fyrr á tímum. Nú hefur Guð látið andann opinbera hann heilögum postulum sínum og spámönnum: Vegna samfélagsins við Krist Jesú og með því að hlýða á fagnaðarerindið eru heiðingjarnir orðnir erfingjar með okkur, einn líkami með okkur, og eiga hlut í sama fyrirheiti og við.
Guðspjall:
Matt 2.13-15 Þegar vitringarnir voru farnir þá vitrast engill Drottins Jósef í draumi og segir: „Rís upp, tak barnið og móður þess og flý til Egyptalands. Þar skaltu vera uns ég segi þér því að Heródes mun leita barnsins til að fyrirfara því.“
Sálmur:
89 Sjá, morgunstjarnan blikar blíð, Þú dásöm perla, dýr og skær, Nicolai - Helgi Hálfdánarson Bæn dagsins:
Jesús Kristur, barn Guðs og ljós þjóðanna, þú sem hefur birst á meðal okkar, eins og barn en ekki eins og einn hinna voldugu. Gef okkur náð til þess að leita þín þar sem þú ert. Þá verður speki þessa heims auðmjúk og fyllist undrun er hún uppgötvar hversu góður þú ert, frelsari okkar og bróðir. Amen.
|
|||||