16. sunnudagur eftir þrenningarhátíð
Litur: Grænn.
Vers vikunnar:
„Jesús Kristur afmáði dauðann en leiddi í ljós líf og óforgengileika með fagnaðarerindinu.“ (2Tím 1.10b)
Kollekta:
Drottinn, vér biðjum þig: Lát náð þín ávallt fyrir oss fara og eftir fylgja og vekja oss vilja og mátt til allra góða verka. Fyrir son þinn Jesú Krist, Drottin vorn, sem með þér lifir og ríkir í einingu heilags anda, einn sannur Guð um aldir alda.
Textaröð:
B
Lexía:
Slm 130 Helgigönguljóð.
Pistill:
Fil 1.20-26 Það er einlæg löngun mín og von að ég verði ekki til smánar í neinu, heldur að ég hafi þann kjark nú eins og ávallt að sýna með lífi mínu og dauða fram á hve mikill Kristur er. Því að lífið er mér Kristur og dauðinn ávinningur. En eigi ég áfram að lifa á jörðinni, þá verður meiri árangur af starfi mínu. Ekki veit ég hvort ég á heldur að kjósa.
Guðspjall:
Jóh 11.19-27 Margir Gyðingar voru komnir til Mörtu og Maríu til að hugga þær eftir bróðurmissinn.
Sálmur:
54 Dýrlegi Jesús, Drottinn allra heima, Fögur er hlíðin, frítt um völl og haga, Blómkrónur anga, brosa móti sólu, Bjartur er máni, blítt skín sól í heiði, Fegurð og yndi, allt á himni og jörðu Hinst þegar kallið kemur burt af heimi, Þýskur höfundur ókunnur - Sigurbjörn Einarsson Bæn dagsins:
Guð lífsins, þú sem reistir son þinn upp frá dauðum og opnaðir okkur leið til eilífs lífs. Við biðjum þig: Hjálpa okkur að treysta því að ekkert getur tekið þetta líf frá okkur aftur, því að þú geymir okkur örugg í þinni hönd um aldur og ævi. Heyr þá bæn í Jesú nafni. Amen.
|
|||||