20. sunnudagur eftir þrenningarhátíð
Litur: Grænn.
Vers vikunnar:
„En Guðs styrki grundvöllur stendur, merktur þessum innsiglisorðum: „Drottinn þekkir sína,“ og: „Hver sá sem nefnir nafn Drottins haldi sér frá ranglæti.““ (2Tím 2.19)
Kollekta:
Drottinn, vér biðjum þig: Veit þeim, sem á þig trúa, af náð þinni fyrirgefningu þína og frið, svo að þeir hreinsist af öllum syndum og þjóni þér með öruggu hjarta. Fyrir son þinn Jesú Krist, Drottin vorn, sem með þér lifir og ríkir í einingu heilags anda, einn sannur Guð um aldir alda.
Textaröð:
B
Lexía:
Rut 2.8-12 Þá sagði Bóas við Rut: „Taktu nú eftir, dóttir mín. Tíndu ekki kornöx á neinum öðrum akri og farðu ekki héðan heldur haltu þig að stúlkunum mínum. Hafðu augun á akrinum þar sem piltarnir eru að skera korn og gakktu á eftir þeim. Ég hef bannað vinnufólkinu að amast við þér. Ef þig þyrstir farðu þá að vatnskerunum og drekktu af þeim sem piltarnir hafa fyllt.“
Pistill:
Fil 2.12-18 Þess vegna, mín elskuðu, sem ætíð hafið verið hlýðin, vinnið nú að sáluhjálp ykkar með ugg og ótta eins og þegar ég var hjá ykkur, því fremur nú þegar ég er fjarri. Því að það er Guð sem verkar í ykkur bæði að vilja og að framkvæma sér til velþóknunar.
Guðspjall:
Matt 21.28-32 Jesús sagði: „Hvað virðist ykkur? Maður nokkur átti tvo syni. Hann gekk til hins fyrra og sagði: Sonur minn, far þú og vinn í dag í víngarði mínum. Hann svaraði: Það vil ég ekki. En eftir á sá hann sig um hönd og fór. Þá gekk hann til hins síðara og mælti á sömu leið. Hann svaraði: Já, herra, en fór hvergi. Hvor þeirra gerði vilja föðurins?“
Sálmur:
729 Þú heimsins ljós, Guðs ljómi skær, Lát alla, sem ei þekkja þig, Vek, hirðir góði, hverja sál, Lát eyrun daufu opnast þér, Gef blindum augum bót og sýn, Svo verði allir eitt í þér, Heermann - Sigurbjörn Einarsson Bæn dagsins:
Guð birtunnar. Þú sýnir okkur veginn sem við eigum að ganga. Og þegar við ákveðum og framkvæmum í samræmi við vilja þinn þá hjálpaðu okkur að ganga hann kjarkmiklum skrefum, fyrir Jesú Krist sem er upphaf og fullkomnun trúarinnar.
|
|||||