22. sunnudagur eftir þrenningarhátíð
Í skuld við Guð. Litur: Grænn.
Vers vikunnar:
„En hjá þér er fyrirgefning
svo að menn óttist þig. “ (Slm 130.4)
Kollekta:
Drottinn Guð, sem ert athvarf vort og styrkur og einn gefur sanna trú: Heyr bænir
kirkju þinnar og lát oss fá að reyna, að þú veitir oss það, sem vér biðjum um. Fyrir
son þinn Jesú Krist, Drottin vorn, sem með þér lifir og ríkir í einingu heilags
anda, einn sannur Guð um aldir alda.
Textaröð:
B
Lexía:
Am 5.12-14 Já, ég veit að glæpir yðar eru margir
Pistill:
1Kor 16.13-14 Vakið, standið stöðug í trúnni, verið hugdjörf og styrk. Auðsýnið kærleika í öllu sem þið gerið.
Guðspjall:
Matt 18.15-20 Ef bróðir þinn syndgar [gegn þér] skaltu fara og tala um fyrir honum og sé það ykkar einna í milli. Láti hann sér segjast hefur þú endurheimt bróður þinn. En láti hann sér ekki segjast skaltu taka með þér einn eða tvo að „hvert orð sé staðfest með framburði tveggja eða þriggja vitna“. Ef hann skeytir þeim ekki þá seg það söfnuðinum. Skeyti hann ekki söfnuðinum heldur, sé hann þér sem heiðingi eða tollheimtumaður.
Sálmur:
187 Ó, skapari, hvað skulda ég? Ég skulda fyrir öll mín ár Ó, skapari, hvað skulda ég? Haf meðaumkun, ó, Herra hár, Og þegar loks mitt lausnargjald Matthías Jochumsson Bæn dagsins:
Heilagi Guð,
kærleikur þinn vinnur bug á valdi hins illa.
Við biðjum þig:
hjálpa okkur að breytast og batna,
svo að við elskum hvert annað
eins og þú elskar okkur,
að við fyrirgefum hvert öðru,
eins og þú fyrirgefur okkur,
og styðjum hvert annað eins og þú styður okkur,
til þess að fyrirgefningin megi móta heiminn.
Þér sé lof að eilífu. Amen.
|
|||||