Uppstigningardagur
Litur: Hvítur.
Kollekta:
Alvaldi, eilífi Guð, vér biðjum þig: Veit oss, sem trúum því, að einkasonur þinn,
Jesús Kristur, frelsari vor, sé upp stiginn til himna, að vér megum hjá honum vera
með hug og hjarta og eilíflega fylgja honum, sem með þér lifir og ríkir í einingu
heilags anda,
einn sannur Guð um aldir alda.
Textaröð:
B
Lexía:
Slm 110.1-4 Davíðssálmur.
Pistill:
Ef 1.17-23 Ég bið Guð Drottins vors Jesú Krists, föður dýrðarinnar, að gefa ykkur anda speki og opinberunar svo að þið fáið þekkt hann. Ég bið hann að upplýsa sjón hjartans svo að þið sjáið hver sú von er sem hann hefur kallað okkur til, hve ríkulega og dýrlega arfleifð hann ætlar okkur meðal hinna heilögu og hve kröftuglega hann verkar í okkur sem trúum. En þetta er sami áhrifamikli, kröftugi mátturinn sem hann lét koma fram í Kristi er hann vakti hann frá dauðum og lét hann setjast sér til hægri handar á himnum, ofar hverri tign og valdi og mætti, ofar öllum herradómi og sérhverju nafni sem nefnt er, ekki aðeins í þessari veröld heldur og í hinni komandi. Allt hefur hann lagt undir fætur honum og gefið hann kirkjunni sem höfuðið yfir öllu. En kirkjan er líkami hans og fyllist af honum sem sjálfur fyllir allt í öllu.
Guðspjall:
Lúk 24.44-53 Og hann sagði við þau: „Meðan ég var enn meðal ykkar sagði ég ykkur: Allt sem ritað er um mig í lögmáli Móse, spámönnunum og sálmunum á að rætast.“
Sálmur:
170 Vér horfum allir upp til þín, Vorn huga, Drottinn, drag til þín Og ekkert löngun hjartans hér En styrk oss til að stríða hér, Sb. 1871 - Páll Jónsson Bæn dagsins:
Jesús Kristur, himininn stendur opinn og þú sýnir okkur jörðina. Þú ert hjá Guði og þú ert nálægt okkur. Þú hefur himinn og jörð í höndum þínum og þú heldur á okkur. Lof sé þér Kristur, Drottinn. Amen.
|
|||||