Lítið kver um kristna trú

Lítið kver um kristna trú

 Enn og aftur fer engill hjá í erli hversdagsins. Á krossgötum ævinnar mæta þér orð og atferli kristinnar trúar, kristinnar kirkju. Snerta þig ef til vill djúpt, en eru svo horfin hjá. Og þér er orða vant að lýsa því og rökstyðja, því veruleika trúarinnar er erfitt að lýsa með orðum. Hann er orðum æðri. Þó er í þessu litla kveri leitast við að varpa ljósi á meginatriði kristinnar trúar og siðar og beina sjónum þangað sem svörin er að finna.