Vígslubiskupskjör í Skálholti 2011

Skálholtsdómkirkja

Kosning til embættis vígslubiskups í Skálholti stendur nú yfir. 

Á fundi kjörstjórnar við vígslubiskupskosningu, sem fram fór 28. apríl, var ákveðið að leggja fram nýja kjörskrá, sem gildi tekur 1. maí 2011.  Gert er ráð fyrir að kosning vígslubiskups í Skálholtsumdæmi geti farið fram að nýju í fyrri hluta júlímánaðar. Á kjörskrá eru nú 149, en tveir þeirra presta er voru á kjörskrá hinn 1. febrúar sl. hafa ekki lengur kosningarétt þar sem þeir hafa látið af störfum.

Kjörskráin mun liggja frammi til sýnis á Biskupsstofu, Laugavegi 31, Reykjavík, og hjá próföstum í Skálholtsumdæmi til 20. maí n.k.

Kærur til breytinga á kjörskránni þurfa að hafa borist kjörstjórn á Biskupsstofu fyrir kl. 16:00, 20. maí 2011, eða hafa verið póstlagðar í síðasta lagi þann dag.

Þeim sem hafa kosningarétt í kosningum vígslubiskups er heimilt að tilnefna kjörgengan mann sem vígslubiskupsefni. Kjörgengur er hver guðfræðikandídat sem fullnægir skilyrðum til þess að vera skipaður prestur í þjóðkirkjunni.

Tilnefningar ásamt skriflegu samþykki hlutaðeigandi skulu hafa borist kjörstjórn með sannanlegum hætti á Biskupsstofu fyrir kl. 16:00, 20. júní 2011, eða hafa verið póstlagðar í síðasta lagi þann dag.

Auglýsing um framlagningu kjörskrár, 28. apríl 2011

Eldra efni

Frétt um upphaf kosningar

Auglýsing um framlagningu kjörskrár

Kjörskrá, mars 2011

Lög og reglur

Lög um stöðu, stjórn og starfshætti kirkjunnar 1997

Starfsreglur um kosningu biskups Íslands og vígslubiskupa nr. 818/2000

Starfsreglur um biskupafund

Starfsreglur um vígslubiskupa

Kynning

Samantekt frá fundi Prestafélags Íslands 28. febrúar 2011 

Viðtöl við frambjóðendur í Sjónvarpi kirkjunnar

FylgiskjölStærð
Kjörskrá, 1. maí 2011183 KB
Auglýsing um framlagningu kjörskrár, 28. apríl 201170.22 KB
Auglýsing um framlagningu kjörskrár, febrúar 201128.5 KB
Kjörskrá, febrúar 2011120.03 KB
Kjörskrá, 18. mars 2011120.41 KB